váaaa manu


Steven Naismith hjá Rangers heldur Wayne Rooney frá boltanum í leiknum í kvöld. Reuters
Íþróttir | mbl.is | 14.9.2010 | 23:19
Ferguson: Ég var með sterkt lið
Senda frétt
Prenta frétt
Upplestur á frétt
Deila
Blogga um frétt
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, kvaðst hafa verið viðbúinn gagnrýni fyrir liðsval sitt eftir að lið hans gerði aðeins 0:0 jafntefli við Rangers frá Skotlandi á Old Trafford í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Ferguson skipti út tíu mönnum úr byrjunarliðinu frá leiknum við Everton á laugardaginn og hélt aðeins Darren Fletcher eftir. Leikmenn eins og Giggs, Scholes, Berbatov, Vidic og van der Sar voru ekki með.

„Gagnrýnin mun beinast að því hversvegna ég stillti ekki upp sterkara lið. En ég var með mjög sterkt lið. Átta þeirra spiluðu leikinn um góðgerðaskjöldinn. Þetta er frábær leikmannahópur. Við hefðum átt að vinna leikinn en Rangers á hrós skilið fyrir leikkerfi sem erfitt var að brjóta upp. Við lékum af ákafa og krafti en leikmenn Rangers þjöppuðu sér saman við vítateiginn og það gekk upp hjá þeim," sagði Ferguson við MUTV.

„Það þarf tíu stig til að fara áfram og þetta var því slæmt í kvöld. Við þurfum núna að fá níu stig úr fimm leikjum. En ef við hefðum unnið, hefðu allir sagt að það hefði verið verðskuldað. Við vorum með boltann 70 prósent af leiknum en sköpuðum okkur samt engin stórkostleg færi og fyrsta hornið okkar kom eftir um 70 mínútur. Við gátum bara ekki skorað. Við spiluðum og spiluðum en náðum ekki að brjótast í gegn," sagði Ferguson.

Antonio Valencia var borinn af velli, að öllum líkindum ökklabrotinn, og Ferguson sagði að hann hefði líkast til bæði farið úr liði og brotnað við það að festast með tána í grasinu.


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Viktor Freyr Joensen
Viktor Freyr Joensen

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband