Færsluflokkur: Bloggar

lært úr nátúrufræði 1 kafla :)

Við lærðum um Massa og eðlismassa. Við lærðum líka að mæla eðlismassa sem er lengd x beidd x hæð. Í tilraunum er skilda að skrá ALLT niður annars verður Tilraunin vitlaus. Vísindamenn nota sameignlegt mælingakerfi SI-kerfi grunneiningar. Til að finna rúmmál stórra hluta þá setjum við t.d steina, járn og gull í yfirfallsker og látum það flæða í mæligles þá sjáum við hvað hann riður mikklu vatni frá sér þá sjáum við rúmmál hlutsins.


Hvernig eru stýrikerfi búin til og hvernig virka þau?

Svar
Stýrikerfi eru yfirleitt gríðarlega flókin og margþættur hugbúnaður. Þess vegna er ekki auðvelt að svara því í stuttu máli hvernig þau eru búin til. Stýrikerfi koma alls staðar við sögu í notkun á tölvunni. Til að útskýra hversu margt stýrikerfið þarf að sjá um þá skulum við taka sem dæmi þegar notandi keyrir upp vafra, til dæmis Firefox.

Til að geta keyrt Firefox þarf fyrst að finna keyrsluskrána. Hún er geymd í skráarkerfi (e. file system), sem er hluti af stýrikerfinu. Skráarkerfi eru oftast byggð upp sem tré, þar sem skráarsöfn (eða möppur) mynda greinarnar og skrárnar mynda laufin. Skrárnar sjálfar geta svo verið geymdar í mörgum hlutum á harða disknum en skráarkerfið sér um það allt fyrir okkur og þurfum við ekki að vita neitt af því. Það er mun hraðvirkara að lesa skrá sem er samfelld á disknum. En þegar harður diskur er aftvístraður (e. defragmented) þá er athugað hvort skrár séu geymdar á mörgum ólíkum stöðum á harða disknum og ef svo er þá eru hlutarnir færðir saman.

Oftast þegar við ræsum forrit eins og Firefox þá gerum við það með því að smella á myndtákn á skjáborðinu eða veljum það úr ræsivalmynd. Þá er unnið með grafískt notendaviðmót (e. Graphical User Interface, GUI) stýrikerfisins. Stýrikerfi geta haft mismunandi notendaviðmót, til dæmis eru til nokkur slík fyrir Linux-stýrikerfið (algengustu eru KDE og Gnome


mbl.is Segir Valencia hafa tvíbrotnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

váaaa manu


Steven Naismith hjá Rangers heldur Wayne Rooney frá boltanum í leiknum í kvöld. Reuters
Íþróttir | mbl.is | 14.9.2010 | 23:19
Ferguson: Ég var með sterkt lið
Senda frétt
Prenta frétt
Upplestur á frétt
Deila
Blogga um frétt
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, kvaðst hafa verið viðbúinn gagnrýni fyrir liðsval sitt eftir að lið hans gerði aðeins 0:0 jafntefli við Rangers frá Skotlandi á Old Trafford í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Ferguson skipti út tíu mönnum úr byrjunarliðinu frá leiknum við Everton á laugardaginn og hélt aðeins Darren Fletcher eftir. Leikmenn eins og Giggs, Scholes, Berbatov, Vidic og van der Sar voru ekki með.

„Gagnrýnin mun beinast að því hversvegna ég stillti ekki upp sterkara lið. En ég var með mjög sterkt lið. Átta þeirra spiluðu leikinn um góðgerðaskjöldinn. Þetta er frábær leikmannahópur. Við hefðum átt að vinna leikinn en Rangers á hrós skilið fyrir leikkerfi sem erfitt var að brjóta upp. Við lékum af ákafa og krafti en leikmenn Rangers þjöppuðu sér saman við vítateiginn og það gekk upp hjá þeim," sagði Ferguson við MUTV.

„Það þarf tíu stig til að fara áfram og þetta var því slæmt í kvöld. Við þurfum núna að fá níu stig úr fimm leikjum. En ef við hefðum unnið, hefðu allir sagt að það hefði verið verðskuldað. Við vorum með boltann 70 prósent af leiknum en sköpuðum okkur samt engin stórkostleg færi og fyrsta hornið okkar kom eftir um 70 mínútur. Við gátum bara ekki skorað. Við spiluðum og spiluðum en náðum ekki að brjótast í gegn," sagði Ferguson.

Antonio Valencia var borinn af velli, að öllum líkindum ökklabrotinn, og Ferguson sagði að hann hefði líkast til bæði farið úr liði og brotnað við það að festast með tána í grasinu.


Höfundur

Viktor Freyr Joensen
Viktor Freyr Joensen

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband